A3 Arboristanámskeið

Stig: A3

Heiti Námskeiðs: Trjáfellingar með böndum. Rigging

Inngöngu skilirði: A2 – ICC2/ECC2

Aldurstakmark: 18 ára

Ráðlagður tími: 3 dagar. Að lágmarki 12 klst. samfellt nám (próf ekki innifalið)

Kennslumáti: Verkleg kennsla og lokamat

Viðurkenning: Alþjóðlegt / evrópskt keðjusagarskírteini og stafrænt e-vegabréf (aðgengilegt allan sólarhringinn)

Gildistími: 5 ár

Búnaður og hlífðarfatnaður: Allur búnaður fyrir þjálfun er skaffaður af Fellitækni fyrir utan hlífðarfatnað.

Lágmarks krafa um hlífðarfatnað: Vinnuhanskar, keðjusagarbuxur, keðjusagarskór, hjálmur fyrir klifur með heyrnahlífum, grind og hökubandi.

Námskrá

A3 Arboristanámskeið er námskeið til réttinda þar sem farið er yfir helsatu aðferðir við að fella tré með böndum (rigging) 

  1. Vita af hverju persónuhlífar (PPE) eru nauðsynlegar og hvaða búnað þarf að nota
  2. Geta greint hættur og áhættu og fylgt viðeigandi varúðarráðstöfunum
  3. Þekkja kröfur um skráningu slysa, atvika og viðbragða
  4. Geta skoðað og notað persónuhlífar á réttan hátt
  5. Geta framkvæmt áhættumat og skipulagt viðbrögð við neyðartilvikum
  6. Geta framkvæmt öryggisskoðun á búnaði
  7. Þekkja orsakir mögulegrar mengunar og umhverfisspjalla og hvernig megi koma í veg fyrir þær, ásamt lagalegum kröfum
  8. Þekkja öryggissjónarmið sem þarf að hafa í huga við trjáklifur og notkun keðjusagar í trjám við rigging-vinnu (niðurtekt trjáhluta með búnaði)
  9. Geta klifrað í tré og notað vinnustöðuaðferðir (work positioning) á öruggan hátt
  10. Geta notað mismunandi aðferðir við að taka tré niður í hlutum á öruggan hátt með keðjusög
  11. Geta riggað og látið trjáhluta síga niður á tiltekna staði á öruggan hátt
  12. Þekkja hættur sem fylgja notkun óviðeigandi aðferða við trjáklifur og notkun keðjusagar í trjám við rigging-vinnu

Sendu okkur fyrirspurn

Við erum center fyrir ABA International. Við bjóðum upp á námskeið og próf sem leiða til vottorðs í trjáklifri (Arborist Certificate) og keðjusagarvottorðs (Chainsaw Certificate).

ABA International er sjálfseignarstofnun sem hefur starfað síðan árið 2009. Samtökin urðu til sem framhald af verkefninu European Chainsaw Certificate (ECC) og sem svar við alþjóðlegri þörf fyrir gagnkvæma viðurkenningu á hæfni og réttindum innan trjáhirðu- og skógræktargeirans.

ABA International veitir alþjóðlega viðurkennda staðla fyrir þjálfun, mat og vottun. Staðlar ABA veita atvinnurekendum traust á hæfni umsækjenda og skapa starfsfólki aukin atvinnutækifæri. Jafnframt leitast ABA International við að hækka gæði þjálfunar og vottunar og tryggja stöðuga þróun byggða á nýjustu stöðlum og bestu starfsvenjum innan greinarinnar.

ABA International starfar í 30 löndum víðs vegar um heiminn og innan kerfisins starfa prófdómarar sem hafa framkvæmt yfir 2.000 próf.

Við erum stolt af því að geta verið hluti af ABA International og tekið þátt í verkefninu, bæði hvað varðar þjálfunarstaðla og möguleikann á að halda vottunarpróf.