Arboristanámskeið

Klifur, björgun og notkun á handsög

Arborista námskeið A1

A1

Notkun á kejusög við klifur

Arborista námskeið A2

A2

Fella tré með böndum (rigging)

Arborista námskeið A3

A3

Við erum center fyrir ABA International. Við bjóðum upp á námskeið og próf sem leiða til vottorðs í trjáklifri (Arborist Certificate) og keðjusagarvottorðs (Chainsaw Certificate).

ABA International er sjálfseignarstofnun sem hefur starfað síðan árið 2009. Samtökin urðu til sem framhald af verkefninu European Chainsaw Certificate (ECC) og sem svar við alþjóðlegri þörf fyrir gagnkvæma viðurkenningu á hæfni og réttindum innan trjáhirðu- og skógræktargeirans.

ABA International veitir alþjóðlega viðurkennda staðla fyrir þjálfun, mat og vottun. Staðlar ABA veita atvinnurekendum traust á hæfni umsækjenda og skapa starfsfólki aukin atvinnutækifæri. Jafnframt leitast ABA International við að hækka gæði þjálfunar og vottunar og tryggja stöðuga þróun byggða á nýjustu stöðlum og bestu starfsvenjum innan greinarinnar.

ABA International starfar í 30 löndum víðs vegar um heiminn og innan kerfisins starfa prófdómarar sem hafa framkvæmt yfir 2.000 próf.

Við erum stolt af því að geta verið hluti af ABA International og tekið þátt í verkefninu, bæði hvað varðar þjálfunarstaðla og möguleikann á að halda vottunarpróf.

Sendu okkur fyrirspurn