Stig: ICC3/ECC3
Heiti Námskeiðs: Advanced trjáfellingar
Inngöngu skilirði: ICC2/ECC2
Aldurstakmark: 18 ára
Ráðlagður tími: 3 dagar. Að lágmarki 18 klst. samfellt nám (próf ekki innifalið)
Kennslumáti: Verkleg kennsla og lokamat
Viðurkenning: Alþjóðlegt / evrópskt keðjusagarskírteini og stafrænt e-vegabréf (aðgengilegt allan sólarhringinn)
Gildistími: 5 ár
Búnaður og hlífðarfatnaður: Allur búnaður fyrir þjálfun er skaffaður af Fellitækni fyrir utan hlífðarfatnað.
Lágmarks krafa um hlífðarfatnað: Vinnuhanskar, keðjusagarbuxur, keðjusagarskór, hjálmur með heyrnahlífum og grind
ICC3/ECC3 er námskeið til réttinda þar sem farið er yfir helsatu aðferðir við trjáfellingar á trjám yfir 38cm í þvermál. Verkleg þjálfun að fella stór tré með aðstoð víraspila og strekkjara.
Við erum center fyrir ABA International. Við bjóðum upp á námskeið og próf sem leiða til vottorðs í trjáklifri (Arborist Certificate) og keðjusagarvottorðs (Chainsaw Certificate).
ABA International er sjálfseignarstofnun sem hefur starfað síðan árið 2009. Samtökin urðu til sem framhald af verkefninu European Chainsaw Certificate (ECC) og sem svar við alþjóðlegri þörf fyrir gagnkvæma viðurkenningu á hæfni og réttindum innan trjáhirðu- og skógræktargeirans.
ABA International veitir alþjóðlega viðurkennda staðla fyrir þjálfun, mat og vottun. Staðlar ABA veita atvinnurekendum traust á hæfni umsækjenda og skapa starfsfólki aukin atvinnutækifæri. Jafnframt leitast ABA International við að hækka gæði þjálfunar og vottunar og tryggja stöðuga þróun byggða á nýjustu stöðlum og bestu starfsvenjum innan greinarinnar.
ABA International starfar í 30 löndum víðs vegar um heiminn og innan kerfisins starfa prófdómarar sem hafa framkvæmt yfir 2.000 próf.
Við erum stolt af því að geta verið hluti af ABA International og tekið þátt í verkefninu, bæði hvað varðar þjálfunarstaðla og möguleikann á að halda vottunarpróf.